Kristín Eiðsdóttir skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjallabyggð.
Kristín Ágústa er fædd og uppalin á Siglufirði. Hún er gift Ástþóri Árnasyni og eiga þau þrjár dætur.
Hún starfar við leikskólann Leikskála og hefur gert í tæp sex ár. Samhliða starfi er hún að ljúka B.Ed.-gráðu í kennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri.
Kristín Ágústa vill leggja sitt af mörkum til að Fjallabyggð verði áfram góður og fjölskylduvænn staður til að búa á. Hún leggur áherslu á að börn hafi greiðan aðgang að íþróttum og fjölbreyttu frístundastarfi svo þau geti vaxið og dafnað í öruggu og hvetjandi umhverfi. Þá vill hún efla frístundastarf, stuðla að sveigjanlegri vistun í leikskólum og koma á sumarfrístund fyrir yngstu börnin.
Í frítíma sínum nýtur hún þess að vera úti í náttúrunni, sérstaklega á skíðum og í fjallgöngum, og verja tíma með fjölskyldu og vinum.