Ungmennafélagið Glói stendur fyrir öðru körfuboltanámskeiði í sumar í samstarfi við Kjörbúðina. Námskeiðið er í dag, sunnudaginn 5. júlí og á morgun, mánudaginn 6. júlí á skólabalanum á Siglufirði.  Námskeið hefst kl. 19.00 og er fyrir ungmenni sem voru að ljúka 9. og 10. bekk. Hvor æfing er um klukkustund. Það þarf ekki að skrá sig, bara að mæta á staðinn.
Gjald er 1.000 kr. samtals sem greiðist í upphafi fyrri æfingar.
Þjálfari er Þórarinn Hannesson, íþróttakennari.
Farið verður í ýmsar æfingar og skotleiki sem veita þátttakendum undirstöðu og hugmyndir til að æfa sig áfram á eigin forsendum.
Tilvonandi þátttakendur sem eiga körfubolta mega endilega grípa þá með á námskeiðið.
Stefnt er að fleiri slíkum námskeiðum í sumar fyrir ýmsa aldurshópa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umf Glóa ásamt ljósmynd.