Öllum skíðaiðkendum landsins á aldrinum 12-15 ára er hér með boðið að taka þátt (árg. 1997-2000) í Kópaþreki 2012.
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er hugsunin á bak við Kópaþrekið að leyfa krökkunum að hittast, kynnast, taka þrekæfingar og keppa innbyrðis, bæði í hóp- og einstaklingsþrautum og síðast en ekki síst að skemmta sér saman eina helgi og þétta þannig hópinn, án skíða. Þetta er jafnt fyrir keppendur í alpa- sem og norrænum greinum.

Dagskrá Kópaþreks 2012

Föstudagur 2. nóvember

  • Kl. 18:00 Mæting í Breiðabliksskálann í Bláfjöllum
  • Kl. 19:00 Æfing
  • Kl. 20:00 Kvöldmatur
  • Kl. 21:00 Kvöldvaka
  • Kl. 23:00 Háttatími

Laugardagur 3. nóvember

  • Kl. 8:00 morgunmatur
  • Kl. 9:00 – 11:30 hópaæfingar
  • Kl. 12:00 hádegismatur
  • Kl. 13:00 – 16:00 þrektest í Smáranum
  • Kl. 16:30 Óvissuferð
  • Kl. 19:00 út að borða
  • Kl. 21:00 kvöldvaka í skálanum, þar sem öll félög koma með eitt atriði hvert
  • Kl. 23:00 háttatími

Sunnudagur 4. nóvember

  • Kl. 8:30 morgunmatur og svo gengið frá í skálanum.
  • Kl. 10:00 brottför úr skála og niður í Smára.
  • Kl. 10:45 létt útiæfing í Kópavogi
  • Kl. 12:30 Hádegismatur í Smáranum, að loknum hádegismat er verðlaunaafhending, myndataka og slútt.
  • Kl. 14:00 allir halda til síns heima.

Skíðadeild Breiðabliks áskilur sér rétt til að breyta dagskránni.  Upplýsingar um skráningu veitir steingerdur@simnet.is hjá Breiðablik.