Kjarnafæðimótið á Akureyri fer í gang föstudagskvöldið 5. desember með leik Þór/KA og Dalvík. Í B deild spilar Knattspyrnufélag Fjallabyggðar ásamt KA3, Þór4 og Tindastóli. Þetta mót markar upphaf knattspyrnutímabilsins eftir stutt hlé en Lengjubikarinn tekur svo við í febrúar. Héðinsfjörður birtir stuttar fréttir af leikjum KF á þessu móti þegar úrslit liggja fyrir. Á þessu móti eru yngri leikmenn gjarnan að fá tækifæri og dýrmæta reynslu og einnig eru leikmenn á reynslutíma sem fá leiki, og má oft sjá óvænt nöfn á leikskýrslum liðanna.
Áætlað er að fyrsti leikur KF verði 19. desember gegn KA3.
Mótið í ár verður spilað á eftirfarandi hátt:
Kvennadeild: Ein deild
Karladeild: Tvær deildir og tveir riðlar í hvorri deild.
Krossspil verður spilað á milli riðla um miðjan og í lok janúar.