Kiwanisklúbburinn Skjöldur í Fjallabyggð hefur styrkt nokkur íþróttafélög í sveitarfélaginu um 100.000 kr. hvert og fer hann í barnastarf, en heimsmarkmið Kiwanishreyfingarinnar er „Börnin fyrst og fremst“. Styrkirnir voru afhentir við athöfn í Kiwanishúsinu á Siglufirði 12. mars síðastliðinn.
Félögin sem fengu styrki núna voru Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og við styrknum tók Dagný Finnsdóttir, Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, fulltrúi þess var Hjalti Gunnarsson, Tennis- og badmintonfélag Siglufjarðar, fulltrúi þess var Óskar Þórðarson og Skíðafélag Ólafsfjarðar þar sem Kristján Hauksson veitti styrknum viðtöku.
Forseti Skjaldar flutti smá tölu við þetta tækifæri og fer hún hér á eftir:
„Hvað er Kiwanis?
Kiwanis eru alþjóðleg samtök þar sem hundruð þúsunda manna vinna saman. Meginmarkmið Kiwanis International er að bæta líf barna í heiminum. Það er gert með fjölbreyttum verkefnum innan hreyfingarinnar:
  • Við vinnum forvarnarverkefni, vekjum athygli og komum af stað umræðu sem skilar árangri.
  • Við öflum fjár.
  • Eitt af því sem aldrei fæst nóg af eru peningar. Við öflum fjár til góðra verkefna og komum þeim í réttar hendur.
  • Við gefum tíma okkar.
  • Félagar í Kiwanis búa saman yfir gríðarlegri þekkingu og reynslu. Þessari reynslu komum við áfram með kennslu og þjálfun.
  • Við búum til tækifæri.
  • Við hjálpum börnum og ungu fólki að ná lengra með kennslu, þjálfun og opnum þannig fyrir ný tækifæri.“