Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Þór-4 á Kjarnafæðismótinu í gær og var þetta annar leikur KF á mótinu og hefur liðið byrjað vel. KF stillti upp sterku liði gegn ungu Þórsliði en yngri menn komu einnig inná hjá KF. Javon Sample stóð í markinu hjá KF í þessum leik. Það er Knattspyrnudómarafélag Norðurlands sem heldur utan um mótið og eru myndir með fréttinni frá þeim.
Leikurinn var nokkuð jafn framan af en það dró til tíðinda á 23. mínútu þegar Hjörvar Már Aðalsteinsson skoraði eftir langt innkast fyrir KF, og staðan orðin 1-0. KF voru svo aftur á skotskónum á 39. mínútu þegar Hilmar Símonarson skoraði eftir hraða sókn og staðan því orðin 2-0.
Í síðari hálfleik var KF meira með boltann en Þórsarar áttu reglulega góðar rispur en ákvarðanatökur og sendingar á síðasta þriðjungi vallarins sviku þá. Á 75. mínútu kláraði KF leikinn þegar Elvar Orri Kristbjargarson skoraði og kom liðinu í 3-0. Var þetta með allra fyrstu snertingum hans í leiknum en hann hafði komið inná sem varamaður aðeins mínútu fyrr. Lokatölur 3-0 fyrir KF og er liðið nú með tvo sigra úr tveimur leikjum. Næsti leikur KF er gegn Tindastól 20. janúar.
Mörk KF:
Hjörvar Már Aðalsteinsson – 25′
Hilmar Símonarson – 39′
Elvar Orri Kristbjargarson – 75′
Skiptingar KF
62′ mínúta
Elis Beck Kristófersson – út Hjörvar Már Aðalsteinsson – út
Hafþór Máni Baldursson – inn Jóhannes Helgi Alfressðn – inn
74′ mínuta
Alex Helgi Óskarsson – út Þorgeir Örn Tryggvason – út
Haukur Rúnarsson – inn Elvar Orri Kristbjargarson – inn
82′ mínúta
Viktor Ívan Vilbergsson – út Ljuba Delic – út
Björn Helgi Ingimarsson – inn Gunnlaugur Orri Freysson – inn
Þór 4
62 mínúta Friðrik Máni Sveinsson – Út
Hrafn Leví Þórðarsson – Inn
88 mínúta
Smári Signar Viðarsson – Út Jón Alex Sveinsson – Út
Óðinn Helgason – Inn Baltasar Bassi Margrétarson – Inn

