Knattspyrnufélag Fjallabyggðar heimsótti nágrannana á Dalvík í gær í 2.deild karla í sannkölluðum fallbaráttuslag. Dalvík/Reynir er á botni deildarinnar en KF var í næst neðsta sæti fyrir leikinn í gær. Það var því mikið undir í leiknum. KF skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik og voru því í þægilegri stöðu 0-3 þegar að dómarinn flautaði til leikhlés. Strákarnir úr Fjallabyggð voru hvergi nærri hættir, og bættu við fjórum mörkum í síðari hálfleik og urðu lokatölur 0-7 fyrir KF. Alger niðurlæging í þessum nágrannaslag. KF komst í 8. sæti deildarinnar og hefur nú unnið þrjá leiki og gert þrjú jafntefli.

Jökull Steinn skoraði tvö mörk sem og Jordan Tyler, þá skoruðu Alexander Már, Gabríel og Milan sitt markið hver. Einn leikamaður spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki fyrir KF, en Valur Reykjalín kom inn á þegar að ellefu mínútur voru eftir, en hann er aðeins 16 ára og leikur með 2. og 3. flokki KF. Áhorfendur voru 211 á þessum mikla markaleik.