Knattspyrnufélag Fjallabyggðar heimsótti Ými í Kórnum í Kópavogi í 17. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla. Þetta var einn af þessum sex stiga leikum en bæði lið voru rétt fyrir ofan fallsvæðið í deildinni og þurftu nauðsynlega á öllum þremur stigum að halda.  KF saknaði nokkura leikmanna, meiðsli og önnur fjarvera er hjá nokkrum leikmönnum. Alexander Már Þorláksson var ekki á leikskýrslu í þessum leik, Damak og Ljubomir hafa heldur ekki leikið með liðinu í nokkurn tíma og þá eru líka meiðsli. Ungir strákar fá á meðan tækifærið og voru tveir uppaldir fæddir árið 2010 sem fengu tækifæri í þessum leik.

KF var aðeins búið að vinna einn útileik á Íslandsmótinu og Ýmir hafði verið að ganga vel í síðustu leikjum í deildinni. Búist var við jöfnum leik en Ýmir var með tveimur stigum minna en KF í deildinni og gátu með sigri komist yfir KF. KF gat hinsvegar með sigri komust töluvert frá fallsætinu.

Fyrri leikur liðanna fór 1-1.

Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.

Umfjöllun:

Þjálfari KF hélt sig fram á bekknum og stýrði strákunum vel þaðan eins og í undanförnum leikjum. Miðað við meiðsli og annað þá átti maður jafnvel von á honum í byrjunarliðinu.

KF þurfti að gera breytingu í upphafi leiks þegar Grétar Áki þurfti skiptingu á 13. mínútu en inná kom Jóhannes Alfreðsson, reynslumesti leikmaður liðsins og sá elsti. Áki féll niður eftir að leikmaður Ýmis fór aftan í hann og var hann borinn af velli með meiðsli.

Það voru heimamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins á 22. mínútu.  KF náði hins vegar að jafna leikinn rétt fyrir hálfleik og var það nýr leikmaður Nathan Yarded sem skoraði gott mark. Hans þriðja mark í tveimur leikjum fyrir KF. Staðan 1-1 í hálfleik.

Síðari hálfleikur var opnari og eftir þrjár skiptingar hjá Ými þá fóru þeir að komast í betri færi. Þeir fengu víti á 71. mínútu og skoruðu, staðan 2-1 og nokkrum mínútum síðar kom annað mark frá þeim, staðan 3-1.

Þjálfari KF gerði eina skiptingu, og skoraði liðið fljótt þegar Brendan Koplin kláraði gott færi, staðan 3-2 og komu þrjú mörk á sex mínútum og enn voru 13 mínútur eftir auk uppbótartíma.

Ýmir gerði tvær aðrar skiptingar og skoruðu mark á 89. mínútu, staðan orði 4-2. Í uppbótar tíma skoraði KF sitt þriðja mark, staðan 4-3 en það var Hilmar Símonarson, sem gerði markið, en hann hefur ekki skorað mark fyrir KF í 11 ár. Hans fyrsta deildarmark fyrir félagið.

Ekki var tími fyrir fleiri mörk og var því lokastaðan 4-3 og komst Ýmir upp fyrir KF í töflunni. KF er nú í 9. sæti með 20 stig, 5 stigum frá fallsæti. Það hefur bjargað liðinu að neðstu þrjú liðin hafa öll tapað síðustu þremur leikjum sínum.

Næsti leikur er á miðvikudaginn gegn Tindastól.