Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði styrkja umfjöllun um leiki KF á Íslandsmótinu 2026.
Kíktu á nýjustu vikutilboðin hjá Kjörbúðinni og verslaðu á netinu hjá Siglufjarðar Apóteki og pantaðu lyfin rafrænt.
Upphitun:
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Höttur á Egilsstöðum mættust í 1. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla um helgina. Leikið var á Rafey-vellinum í Fellabæ sem er gervigrasvöllur. Kalt var í veðri og sterkur vindur, hiti var þó á bilinu 6-7 gráður, en vindurinn var 11 m/s og hviður í 16 m/s.
Höttur/Huginn féllu úr 2. deild í fyrra og hætti samstarfið og er núna spilað undir nafni Hattar í 3. deildinni. KF er með nokkuð breytt lið frá því á síðasta tímabili þegar liðið rétt slapp með fall eftir erfitt mót. Nokkrir nýir erlendir leikmenn hafa komið í hópinn og yngri leikmenn bæst við.
Umfjöllun:
KF var með vindinn í bakið í fyrri hálfleik og lágu nokkuð á heimamönnum. KF var betra liðið í fyrri hálfleik en tókst þó ekki að skora á móti góðum markmanni Hattar. Heimamenn fengu eitt færi í fyrri hálfleik eftir skyndisókn, en tókst ekki að skora. 0-0 var í því staðan í hálfleik. Höttur gerði eina skiptingu rétt fyrir hálfleik og aðra í hálfleik.
Heimamenn uxu jafnt og þétt í síðari hálfleik, en fá færi litu þó dagsins ljós. Þjálfari KF gerði tvöfalda skiptingu á 69. mínútu fyrirliðinn Marinó Snær Birgisson og Agnar Óli Grétarsson komu útaf fyrir Sigurstein Birgisson og Pietro Fontana. Höttur gerði einnig þrjár breytingar þegar líða tók á seinni hálfleik.
Lokatölur urðu 0-0 í þessum leik, en KF menn líklega óheppnir að hafa ekki nýtt betur færin í fyrri hálfleik með vindinn í bakið.

