Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Reyni Sandgerði í 21. umferð Íslandsmótsins og síðasta heimaleik KF í ár.

KF þurfti sigur til að tryggja sig algjörlega frá falli, en jafntefli hefði líka verið hjálplegt. Allt var þetta þó spurning um gengi annara liða fyrir neðan KF í deildinni í þessari næstsíðustu umferð Íslandsmótsins. Töluverð spenna hefur verið í fallbaráttunni í undanförnum umferðum.

Markmaður KF, Chad Smith var meiddur og var í liðstjórn á bekknum. Halldór Ingvar Guðmundsson fyrrum þjálfari og markmaður liðsins hljóp í skarðið í þessum leik og var í byrjunarliðinu. Hann hætti formlega með liðinu árið 2021, en lék tvo leiki árið 2022 og 2023 þegar liðið var í markmannskrísu. Gott að geta kallað í svona traustan leikmann þegar meiðsli koma upp.

Alexander Már Þorláksson var aftur kominn í liðið en hann hefur leikið þrjá leiki með liðinu eftir félagskiptin og skorað þrjú mörk. Nokkrir leikmenn voru í leikbanni í síðasta leik, en eru þeir nú komnir aftur í hópinn. Jordan Damachoua var ekki í hóp, en hann meiddist líklega í síðasta leik þegar hann fékk skiptingu snemma í síðari hálfleik.

Vitor Thomas var ekki í hóp hjá KF í þessum leik. Formaðurinn Örn Elí Gunnlaugsson var á meðal varamanna en hann hefur verið að glíma við meiðsli í sumar og lék síðast með liðinu í byrjun júní. Formaðurinn getur náð sínum fimmtugasta KSÍ leik komi hann við sögu í leiknum.

Reynir eru með ungan markmann í markinu, fæddan 2007 og á hann 15 leiki fyrir meistaraflokk.

Yfir 20 bílar voru í skotastúkunni Hornbrekkumegin á vellinum.

Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.

Umfjöllun:

Gestirnir sóttu töluvert að marki KF í átt að grunnskólanum í fyrri hálfleik. KF slapp með skrekkinn í nokkur skipti þegar hættlegar fyrirgjafir fóru framhjá öllum leikmönnum í teignum. Dóri markmaður greip líka vel inní á milli og var fljótur að koma boltanum í leik sem hefur verið hans aðalsmerki í gegnum tíðina. KF átti nokkur tækifæri líka í fyrri hálfleik. Ágætt færi kom eftir hornspyrnu en sóknarmaður KF skallaði rétt framhjá markinu. Nathan Yared var hættulegur þegar hann fékk boltann og tók menn á.  Hilmar Símonarson barðist vel og átti ófáar tæklingar í fyrri hálfleik og lét menn finna fyrir sér.

Besta færi Reynis kom eftir lok fyrri hálfleik þegar þeir sóttu upp vinstri kantinn og náðu góðri sendingu inn á vítateig þar sem sóknarmaður þeirra var óvaldaður á milli miðvarða KF og skoraði auðveldlega með skalla. Staðan 0-1 þrátt fyrir mikla baráttu hjá KF. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik.

Dóri markmaður KF hélt áfram að reyna finna Alexander Má og var snöggur að losa boltann fram og tók Alexander nokkur góð hlaup og ógnaði marki Reynis.

Reynir var áfram sterkara liðið þrátt fyrir góða baráttu KF, næst mark kom eftir hraða sókn og afgreiddi sóknarmaður Reynis boltann vel á nærstöngina. Staðan 0-2. Miðjumaður KF lág meiddur í grasinu á meðan Reynir kláraði sóknina með marki.

Þriðja markið kom eftir gott samspil hjá Reyni og var sóknarmaður þeirra einn á móti markmanni og setti boltann í netið. Staðan orðin 0-3.

KF fékk aukaspyrnu rétt fyrir leikslok fyrir utan vítateig Reynis, en boltinn fór rétt yfir markið. KF reyndi að sækja undir lok leiksins og missti markmaður Reynis boltann í eitt skiptið en leikmaður KF náði ekki að koma skoti á markið í upplögðu tækifæri.

Reynir hélt boltanum vel allan leikinn og voru sterkara liðið.

Lokatölur urðu 0-3 og var þetta fimmti tapleikur KF í röð í deildinni. Úrslitin í neðri hluta deildarinnar ráðast í lokaumferðinni en KFK tapaði einnig sínum leik og Sindri á leik á morgun.