Knattspyrnufélag Fjallabyggðar tók á móti Knattspyrnufélagi Hlíðarenda á Ólafsfjarðarvelli í síðustu umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla. KH þurfti sigur til að tryggja sér sæti í 2. deildinni, KF gat komist í 5.-6. sæti deildarinnar með sigri. KH mætti með stuðningsveit frá Reykjavík og heyrðist vel í þeim í stúkunni í upphafi leiks. Frekar fámennt var á leiknum í súldinni, en nokkrir bílar voru að vanda í skotastúkunni.

KF vann fyrri leik liðanna í sumar á Hlíðarenda og einnig báða leikina gegn KH árið 2019 þegar liðin léku saman í 3. deildinni. KF stillti upp sterku liði í þessum leik.

Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.

Umfjöllun:

KF byrjaði með boltann og léku í átt að Hornbrekku í fyrri hálfleik. KF sótti fyrstu mínúturnar og komust fljótlega í færi og KH einnig.  KF var meira með boltann fyrstu 30 mínúturnar og sótti að KH. Um miðjan fyrri hálfleik fékk KF aukaspyrnu vinstra megin við vítateiginn og áttu skot í þverslánna. Nokkur ógnun var hornspyrnum beggja liða í fyrri hálfleik. KH voru þéttir fyrir með fjóra varnarmenn og þrjá miðjumenn þarn fyrir framan og lokuðu vel svæðum.

KH fékk hornspyrnu frá hægri á 43. mínútu og sendu lágan bolta á nærstöngina þar sem Bjarmi Kristinsson kom í hlaup og setti boltann í netið. Staðan orðin 0-1 og þannig var staðan í hálfleik.

KH fékk aðra hornspyrnu á 54. mínútu og aftur frá hægri og kom góður bolti í á svæði markmanns innarlega á vítateignum. Sóknarmaður KH stóð fyrir framan markmann KF og skallaði boltann auðveldlega inn. Þarna vantaði betri dekkingu og meiri ákveðni frá markmanni KF sem hefði átt að ná til boltans. Staðan orðin 0-2.

Tveimur mínútum síðar eða á 56. mínútu fékk KF innkast frá hægri og Agnar Óli mætti á svæðið og grýtti boltanum langt inn á vítateig KH og reyndi markmaður að ná til boltans en missti hann í teiginn. Thomas Lamaille var fljótur að átta sig og skoraði gott mark og minnkaði muninn í 1-2.

KH fékk gott færi þegar dæmd var aukaspyrna í vítateigsboganum en boltinn fór rétt framhjá. Á 68. mínútu fékk Friðrik Örn Ásgeirsson rautt spjald hjá KF og lék liðið einum færri út leikinn.

Á 79. mínútu fór KH í sókn og áttu stungusendingu upp hægri kantinn og var markmaður KF framarlega í teignum og reyndi að ná til boltans, en misheppnaðist að hreina frá. Sóknarmaður KH náði aftur til boltans og átti gott skot að marki sem varnarmenn KF náðu ekki til og komust í 1-3 og fögnuðu gestirnir vel þessu marki.

KF hélt áfram að sækja og KH reyndi að verja sitt forskot. KF fékk aukaspyrnu á vinstri helmingi í uppbótartíma sem Thomas Lamaille tók og sendi boltann til Chad Smith markmanns og fékk hann aftur og sendi háan bolta á fjærstöngina þar sem Jón Frímann Kjartansson stangaði boltann inn og minnkaði muninn í 2-3 á 93. mínútu.

KF reyndi að halda áfram að sækja en fleiri mörk voru ekki skoruðu og vann KH 2-3 og komust upp í 2. deild.

KF endaði mótið í 8. sæti með 27 stig og leika því áfram í 3. deildinni á næsta ári. Það voru Víðir og KH sem fór upp úr deildinni í ár.