Fyrsti leikur KF á Íslandsmótinu í 3. deild karla fór fram í dag á Dalvíkurvelli. Ólafsfjarðarvöllur er illa leikinn eins og undanfarin ár, en menn muna enn eftir ástandinu síðasta sumar. Völlurinn er nánast eitt moldarflag eins og staðan er núna.
KFK er Knattspyrnufélag Kópavogs og hefur verið í neðri deildum á Íslandsmótinu undanfarin ár. KF liðið er töluvert breytt frá síðasta ári, og er t.d. nýr markmaður og nýir sóknarmenn komnir í liðið. Þrír erlendir menn eru nýlega komnir með leikheimild og voru þeir allir í byrjunarliðinu. Marinó Snær er fyrirliði KF í sumar og Daniel Kristiansen er spilandi þjálfari. Kjölfesta í liðinu undanfarin ár hafa verið þjálfari liðsins, Jordan Damachoua, Marinó Snær og Grétar Áki. Ungir leikmenn eru svo að spila sig inn í liðið og erlendir leikmenn styrkja hópinn eins og undanfarin ár.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Umfjöllun:
Aðstæður voru góðar að vanda á Dalvíkurvelli og var rúmlega 15 stiga hiti þegar leikurinn hófst. Leikurinn var varla hafinn þegar gestirnir frá Kópavogi komu boltanum í netið, 0-1 og markið skráð á 1. mínútu.
KF liðið þjappaði sér saman og tók völdin á vellinum og svöruðu strax í fyrri hálfleik. Jordan Damachoua skoraði fyrir KF á 23. mínútu og jafnaði leikinn. Hann er að hefja sitt sjötta tímabil með KF en hann lék með liðinu fyrst 2018 og 2019 áður en hann hélt til Kórdrengja og Þórs, en kom svo aftur í KF.
Grétar Áki kom svo KF yfir með góðu marki á 23. mínútu og gerðust hlutirnir hratt um miðjan hálfleikinn. KF leiddi 2-1 þegar dómarinn flautaði til hlés, en gestirnir náðu þó einnig skiptingu í uppbótartíma.
Marinó Snær fyrirliði KF gerði svo þriðja markið á 55. mínútu og var staðan orðin 3-1. Bæði lið gerðu skiptingar eftir þetta og kom formaður KF inná, Örn Elí Gunnlaugsson á 68. mínútu, en hann er með endurkomu á knattspyrnuvellinum í ár. Hákon Daði og Andri Mar komu einnig inná í þrefaldri skiptingu.
Hákon Daði var fljótur að koma sér inni í leikinn og skoraði á 77. mínútu, staðan 4-1. Hákon er fæddur árið 2007 og á 10 leiki fyrir KF og var þetta hans fyrsta mark fyrir meistaraflokk.
Þjálfari KF gerði svo eina skiptingu rétt fyrir leikslok þegar Hilmar Símonarson kom út af fyrir Ragnar Eiríksson. Hilmar er líka með endurkomu á knattspyrnuvellinum, en hann er þekktari fyrir kraftlyftingar síðustu árin.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann KF þægilegan 4-1 sigur í fysta leiknum í 3. deildinni.
