Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Knattspyrnufélagi Garðabæjar í 12. umferð Íslandsmótsins í meistaraflokki karla. Leikurinn fór fram á Ólafsfjarðarvelli, en töluvert rok setti lit á leikinn.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Upphitun:
KFG var ósigrað í síðustu fjórum leikjum og hafa verið að sækja dýrmæt stig. KF vann frábæran sigur á Haukum í síðustu umferð og vildu fylgja því eftir í þessum leik. KF gat með sigri eða jafntefli komist úr botnsæti deildarinnar. Nokkrir eru enn á meiðslalistanum hjá KF, en Grétar Áki, Jonas Benedikt og Alex Máni voru allir í liðstjórn í dag á bekknum og gátu ekki tekið þátt í leiknum að öðru leiti. Reynsluboltarnir Akil og Edu Cruz voru á bekknum í dag og Þorsteinn Már Þorvaldsson var með fyrirliðabandið. Ljubomir Delic var ekki í hóp í dag hjá KF.
Umfjöllun:
KF byrjaði með rokið í bakið í fyrri hálfleik og sköpuðu ágæt tækifæri. Eftir góða byrjun þá tókst KF að skora snemma leiks þegar hinn ungi Agnar Óli Grétarsson kom boltanum í netið. Hans fyrsta mark í deildinni fyrir KF, en hann hafði áður skorað í Lengjubikarnum með meistaraflokknum, en hann hefur einnig leikið með 3. flokki KF/Dalvík í sumar.
KFG gerði eina skiptingu skömmu eftir markið, en KF leiddi 1-0 í hálfleik.
Gestirnir léku svo með vindinn í bakið í síðari hálfleik og pressuð nokkuð að marki KF. Á 58. mínútu jafnað KFG leikinn þegar þeirra markahæsti maður kom boltanum í netið. Staðan 1-1 og rúmur hálftími eftir.
Þjálfari KF gerði skiptingu á 68. mínútu þegar Akil kom í sóknina fyrir Agnar Óla og tíu mínútum síðar kom Anton Karl Sindrason inná fyrir Marinó Snæ Birgisson sem var á gulu spjaldi.
KFG sótti hart að marki KF til leiksloka en fleiri mörk voru ekki skoruð. Lokatölur 1-1 og er KF núna fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni.
Næsti leikur KF er heimaleikur gegn Ægi, 21. júlí.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.