Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætti Hvíta Riddaranum á gervigrasinu í Mosfellsbæ. Hvíti Riddarinn er í toppbaráttunni og líklegir til að komast upp um deild og hafa verið á mikilli siglingu í sumar. Liðið í 2. sæti deildarinnar og hafa aðeins tapað fjórum leikjum í sumar.
Hjá KF voru fjórir sterkir leikmenn í banni og einhver fjarvera og meiðsli hjá nokkrum öðrum. Jordan Damachoua var aftur kominn í lið KF en hann lék síðast með liðinu 29. júní, er öllu jafnan með í öllum leikjum og lykilmaður og hefur verið saknað. Vitor var aftur kominn í liðið, en hann var ekki með í síðustu tveimur leikjum liðsins. Ljuba Delic var ekki á leikskýrslu frekar en undanfarnar vikur. Grétar Áki var ekki leikfær og var liðstjóri á bekknum og Alexander Már Þorláksson var ekki á leikskýrslu. Óskar Þórðarsson var á bekknum í fjarveru Daniel Kristiansen sem tók út leikbann sem þjálfari og leikmaður.
Í leikbanni hjá KF voru: Brendan Koplin, Daniel Kristiansen, Friðrik Örn Ásgeirsson og Hilmar Símonarson.
KF vann fyrri leik liðanna á Ólafsfjarðarvelli í byrjun sumar 1-0 en búist var við erfiðum leik. KF var aðeins tveimur stigum frá fallsæti þegar leikurinn hófst.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Umfjöllun:
Liðin skiptust á að sækja í byrjun leiks og fékk KF aukaspyrnu á ágætis stað og náði skalla að marki en fór hann yfir, fyrsta marktækifærið hjá þeim. Hvíti Riddarinn fékk einnig aukaspyrnu á hægri kanti og barst boltinn á markteiginn þar sem sóknarmaður þeirra var óvaldaður á milli tveggja varnarmanna KF og skoraði hann með skalla. Frekar einfalt mark og dekking ekki nægjanlega góð hjá KF. Kom þetta mark í upphafi fyrri hálfleiks.
Hvíti Riddarinn sótti töluvert eftir þetta mark og bakkaði KF full mikið. Nathan Yared hélt boltanum vel fyrir KF og sótti hratt á vörn Hvíta Riddarans þegar hann gat. Hvíti Riddarinn var mun meira með boltann og héldu boltanum betur innan liðsins. Næst mark heimamanna var keimlíkt og fyrsta, aukaspyrna og fyrirgjöf og óvaldur sóknarmaður á milli miðvarða KF, sem tók boltann vel niður og skoraði framhjá markmanni KF. Staðan 2-0.
Heimamenn bættu svo við tveimur mörkum í fyrri hálfleik og var staðan orðin þung 4-0 þegar dómarinn flautaði til leikhlés. Markmaður KF fékk skiptingu í hálfleik og kom Jón Grétar Guðjónsson í hans stað, og átti hann eftir að hafa nóg að gera gegn sterku liði heimamanna.
Á fyrstu 10 mínútum síðari hálfleiks skoraði Hvíti Riddarinn tvö mörk og var staðan orðin 6-0. KF gerði skiptingu og kom Jordan útaf fyrir Hafþór Mána Baldursson. Mörkin héldu áfram að hrúgast inn og á 5 mínútna kafla komu þrjú mörk heimamanna og var staðan orðin 9-0.
Þrjú mörk bættust við áður en dómarinn flautaði leikinn af en síðasta markið var skráð sjálfsmark. Lokatölur 12-0 og líklega stærsta tap KF frá stofnun félagsins.
Von var á erfiðum leik en þetta voru ekki tölur sem maður sá fyrir þrátt fyrir að það hafi vantað nokkra leikmenn í lið KF.

