Það verður sannkallaður nágrannaslagur um helgina í 3. deild karla þegar Knattspyrnufélag Fjallabyggðar mætir Dalvík/Reyni á Ólafsfjarðarvelli. Í samstarfi við KF þá gefum við tvo miða á leikinn, og það eina sem þarf að gera er að deila fréttinni á Facebook. Vinningshafi verður dreginn út á föstudagskvöld kl. 21:00. Sá hinn sami fær miða fyrir tvo á leikinn og verða nánari upplýsingar sendar til viðkomandi aðila.
Leikurinn fer fram á Ólafsfjarðarvelli laugardaginn 13. maí og hefst kl. 14:00. Samkvæmt upplýsingum frá KF þá er völlurinn í mjög góðu ástandi eftir snjóléttan vetur. Búast má við hörku leik þar sem ekkert verður gefið eftir.
Liðin mættust síðast í deildarleik árið 2015 þegar liðin voru saman í 2. deild karla, KF vann báða leikina örugglega 5-1 á heimavelli og 0-7 á útivelli. Það ár féll Dalvík/Reynir í 3. deild en liðið endaði síðustu leiktíð í 8. sæti með 17 stig, eða þriðja neðsta sæti. Liðið skoraði rúmlega 1 mark í leik á síðustu leiktíð eða 22 mörk í 18 leikjum.
Liðin mættust einnig snemma árs 2016. KF vann báða þá leiki, 3-2 og síðari 2-1. Vinningshlutfall KF í síðustu 5 viðureignum liðanna eru 4 sigrar og 1 tap. KF endaði hins vegar mótið í síðasta sæti í 2. deild í fyrra, vann tvo leiki, gerði 7 jafntefli og tapaði 13 leikjum.
Nú er bara að drífa sig á völlinn og styðja sitt lið í þessum frábæra nágrannaslag.
