KF og HK mættust í dag 30. júní á Ólafsfjarðarvelli.
HK fékk eitt stig úr heimsókn sinn til Ólafsfjarðar þar sem liðið mætti KF í 2. deildinni. Litlu munaði að þau yrðu þrjú því heimamenn jöfnuðu metin í 2:2 í uppbótartíma. Birgir Magnússon og Friðrik Þór Gunnarsson skoruðu mörk HK en Þórður Birgisson gerði bæði mörk KF.
Liðin eru því áfam jöfn í 4.-5. sæti deildarinnar með 14 stig hvort, þremur stigum á eftir toppliði Reynis úr Sandgerði sem gerði 1:1 jafntefli við Dalvík/Reyni í dag.
Fyrrum HK-ingurinn Þórður Birgisson kom KF yfir á 34. mínútu eftir að hafa fengið sendingu innfyrir vörn HK. Birgir Magnússon jafnaði fyrir HK á 43. mínútu eftir sendingu Ívars Arnar Jónssonar og staðan var 1:1 í hálfleik.
KF fékk fleiri færi í síðari hálfleik en það var varamaðurinn Friðrik Þór Gunnarsson sem kom HK yfir á 84. mínútu, með sinni fyrstu snertingu eftir sendingu frá öðrum varamanni, Jóhanni Andra Kristjánssyni. Sigurinn blasti við en Þórður Birgisson jafnaði leikinn fyrir KF á annarri mínútu uppbótartímans, 2:2.