Nú þegar 13 leikjum er lokið af 22 í 3. deild karla þá hefur Knattspyrnufélag Fjallabyggðar unnið 3 leiki, gert 5 jafntefli og tapað 5 leikjum. Liðið hefur skorað 17 mörk en fengið á sig 18 og er með 14 stig. Tindastóll er í 6. sæti með 17 stig og er því mjög þéttur pakki þarna á milli og getur einn sigur gjörbreytt stöðunni.

KF hefur ekki unnið leik í síðustu fjórum leikjum. Liðið hefur ekki enn unnið útileik en náð þremur jafnteflum á útivelli.  Liðið hefur skorað 5 mörk í 6 leikjum á útivelli.

Liðið hefur náð í 11 stig á heimavelli á Íslandsmótinu og hafa allir sigurleikir komið þar og tvö jafntefli. KF hefur skorað 12 mörk á heimavelli í 7 leikjum og fengið á sig 10.

Liðið fékk nýjan þjálfara fyrir leiktíðina og er það Daniel Kristiansen sem er spilandi þjálfari.  Hann tók við liðinu eftir að það féll úr 2. deildinni á síðustu leiktíð þegar Halldór Ingvar Guðmundsson var þjálfari liðsins. Miklar leikmannabreytingar voru fyrir þessa leiktíð og fengu margir yngri leikmenn stærra hlutverk.

KF lék þrjá leiki í upphafi móts á Dalvíkurvelli og sótti liðið fjögur stig úr þessum leikjum.

KF á 5 útileiki og 4 heimaleiki eftir.

Tímabilið hefur verið í takt við síðasta tímabil, en þá fékk liðið 18 stig í 2. deildinni, unnu 5 leiki, gerðu 3 jafntefli og töpuðu 14 leikjum. Liðið tapaði þá fjórum að síðustu 5 leikjum deildarinnar.

Eins og staðan er núna þá hafa liðin fyrir ofan verið að sækja stig í síðustu leikjum en KF ekki, og hefur því liðið færst í fallbaráttu.

Liðið fékk liðstyrk núna 19. júlí þegar Alexander Már Þorláksson samdi við liðið í þriðja sinn og nú út leiktíðina.  Vonandi nær hann að bæta árangur liðsins á heimavelli og skora nokkur mörk.

Mikið hefur verið rætt um ástandið á Ólafsfjarðarvelli undanfarin ár og aðstöðu liðsins til æfingar yfir vetrartímablið, en þá sækir liðið æfingar til Dalvíkur eða Akureyrar. Fyrstu heimaleikirnir hafa síðustu ár farið fram á Dalvíkurvelli.

Ljóst er að liðið þarf að sækja nokkra sigra til að lyfta sér úr fallsæti.

Næstu leikir liðsins eru:

Árbær á útivelli.

KV á heimavelli.

ÍH á útivelli.

Ýmir á útivelli.

Tindastóll á heimavelli.

Sindri á heimavelli.

Hvíti Riddarinn á útivelli.

Reynir á heimavelli.

Augnablik á útivelli.