Knattspyrnufélag Fjallabyggðar heimsótti Íþróttafélag Hafnafjarðar (ÍH) í 16. umferð Íslandsmótsins. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu Skessunni í Hafnarfirði.
KF gat með sigri komist 5 stigum frá fallsæti en KFK tapaði sínum leik og er í fallsæti ásamt ÍH. ÍH liðið er með lakasta árangur allra liða í deildinni og hefur aðeins unnið 1 leik, gert eitt jafntefli og tapað 13 leikjum fyrir þennan leik. Þá hafði liðið fengið á sig 70 mörk í 15 leikjum og undirbýr liðið sig fyrir að leika í 4. deildinni á næsta ári. ÍH missti tvo leikmenn í þessum félagskiptaglugga og voru fámennir í dag, aðeins með tvo varamenn á bekknum.
KF var með nýjan leikmann, Nathan Yared, sem fór beint í byrjunarliðið en hann sat upp í stúku í síðasta leik, en var nú kominn með leikheimild. Þetta er ungur og efnilegur strákur og byrjaði fyrri hálfleik frábærlega, var leikinn með boltann sífellt ógnandi. Hann fékk treyju númer 14 hjá KF. Jakob Auðun Sindrason var fyrirliði KF í þessum leik. Þjálfari KF, Daniel Kristiansen var á bekknum og gaf sínum mönnum góð fyrirmæli allan leikinn.
Í hópinn vantaði þó nokkra menn, þá Ljuba Delic, Damak, Marinó Snæ (Meiddur), Alex Helga (Farinn til náms) og Hilmar Símonarson. Ungir menn er á móti að fá góða reynslu og tækifæri til framtíðar.
Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Umfjöllun:
KF byrjaði leikinn vel og pressuðu stíft á lið ÍH og fengu þeir lítinn tíma með boltann og reyndu mest langar sendingar í sínum sóknaraðgerðum sem voru hálf máttlausar. KF vildi fá hendi víti eftir um 10 mínútur, en dómarinn sá ekki ástæðu til að dæma. Nokkur góð færi komu sem nýttust ekki. KF fékk svo vítaspyrnu eftir um 25 mínútur og fór Agnar Óli Grétarsson á punktinn og skoraði á mitt markið með föstu skoti. Staðan 0-1 fyrir KF.
KF átti nóg að færum í fyrri hálfleik og léku boltanum vel á milli sín og voru ógnandi fram á við. Nathan Yared átti mjög góðan fyrri hálfleik og var hann oft tekinn niður af ÍH mönnum þegar hann var með boltann.
Annað mark KF kom með skoti fyrir utan teig og var það nýi leikmaðurinn Nathan Yared sem gerði vel. Staðan 0-2. Þriðja markið kom skömmu síðar og aftur barst boltinn til Nathan Yared sem átti fast skot sem fór beint í markið. Staðan 0-3 og KF að spila vel. Dómari leiksins var Elmar Svavarsson, en hann dæmdi nokkra leiki á Reycup í sumar þegar KF/Dalvík var að keppa. Hann hafði í nógu að snúast en ÍH menn voru fastir fyrir og oft með óþarfa tæklingar. Staðan var 0-3 í hálfleik.
KF fékk innkast á góðum stað í síðari hálfleik og kastaði Agnar Óli löngum bolta inn á teiginn og skoraði Hjörvar Már Aðalsteinsson með góðum skalla, staðan 0-4 og hans fyrsta mark fyrir félagið. Nathan Yared var áfram ógnandi og var oft tekinn illa niður af varnarmönnum ÍH.
Hákon Daði varnarmaður KF varð fyrir meiðslum eftir um 10 mínútur í síðari hálfleik og kom Ragnar Eiríksson inná í hans stað. Færin héldu áfram að koma hjá KF. Agnar Óli var duglegur að verjast og fékk gult spjald fyrir eina hressilega tæklingu í síðari hálfleik.
ÍH gerði eina skiptingu í hálfleik og aðra á 52. mínútu og var þar með búnir með alla sína varamenn.
Eftir um 25. mínútuna leik gerði þjálfari KF aðra skiptingu og kom Brendan Koplin og Þorsteinn Þorvaldsson útaf fyrir Jóhannes Helga og Hafþór Mána. Alexander Már færði sig aðeins aftar á völlinn við þessa skiptingu.
ÍH var nálægt því að skora um miðjan síðari hálfleik en KF bjargaði á línu.
Þjálfari KF gerði aðra skiptingu þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Agnar Óli og Alexander Már fengu hvíld og inná kom Grétar Áki og Andri Már Hilmarsson.
Fimmta mark KF kom nokkrum mínútum fyrir leikslok þegar Vitor Thomas komst í boltann. Staðan 0-5.
Sjötta markið hjá KF kom í uppbótartíma og var það Jóhannes Helgi Alfreðsson, elsti leikmaður liðsins, sem kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Grétari Áka. Ekki var tími fyrir meira og flautaði dómarinn leikinn af.
Allir tókust í hendur og gengu sáttir frá leiknum þrátt fyrir mikla baráttu og tæklingar allan leikinn.
Frábær úrslit fyrir KF og lék liðið vel mest allan leikinn og gátu hæglega skorað fleiri mörk. Tempóið datt aðeins niður á tímabili í síðari hálfleik, en það er eðlilegt þegar staðan er 0-5.
KF er núna í 8. sæti deildarinnar, 5 stigum frá fallsæti. Næsti leikur liðsins er útleikur gegn Ými í Kópavogi, 16. ágúst.







