Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Knattspyrnufélagið Hlíðarendi mættust á Valsvelli í Reykjavík í 11. umferð Íslandsmótsins í 3. deild karla. KH var í 3. sæti deildarinnar og hafði unnið síðustu þrjá leiki og var ósigrað í síðustu fimm umferðum mótsins, og hafði aðeins tapað einum deildarleik. KH hafði einnig skoraði 31 mark og aðeins fengið á sig 14, en liðið hefur farið vel af stað á mótinu. KF var einnig ósigrað í síðustu 5 deildarleikjum og hefur verið á góðum spretti. Fyrirfram var búist við sterku liði KH á heimavelli. KH var í 4. deildinni í fyrra og voru þar í 2. sæti og komu því upp í 3. deildina í ár.
Markaskorun hefur gengið hægt hjá KF á mótinu, en liðið var búið að skora 15 mörk í fyrstu 10 leikjunum og fá á sig 15 mörk. Pietro Fontana leikmaður KF var utan hóps í þessum leik vegna meiðsla.
Það er Siglufjarðar Apótek og Kjörbúðin Siglufirði sem styrkja umfjöllun um leiki meistaraflokks KF í sumar.
Umfjöllun:
Aðstæður á vellinum voru góðar og er stúkan líklega sú stærsta hjá 3. deildarliði í ár. KF byrjaði leikinn og lék í áttina frá Öskjuhlíð. Liðin voru að þreifa fyrir sér fyrstu mínúturnar og fóru varlega inn í leikinn. KF átti góða skyndisókn eftir rúmar 15 mínútur og fór Thomas Lamaille upp hægri kantinn og lék á þrjá leikmenn KH og náði góðri fyrirgjöf inn á teig þar sem Jhoel Adrian Sarraude náði í boltann og skoraði. Frábær sókn og staðan 0-1. Þetta var 5 markið hjá Jhoel í deildinni í ár fyrir KF.
KF fékk skömmu síðar aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan vítateigsbogann. Boltinn fór beint í varnarvegginn hjá KH og nýttist færið ekki. KH hélt áfram að reyna búa til færi en vörn KF hélt vel. Eftir um hálftíma leik þá meiddist fyrirliði KF og settist á grasið, Marinó Snær virtist fá tak í lærið og gat ekki haldið leik áfram. Ljubomir Delic kom því inná fyrir hann á þessum tímapunkti.
KH fékk töluvert af hornspyrnum í fyrri hálfleik og var alltaf nokkur hætta á ferðum en KF gerði vel að verjast. KF var meira með boltann í fyrri hálfleik.
Staðan var 0-1 í hálfleik. Engin skipting var gerð í hálfleik og hélt leikurinn áfram að vera jafn og góð barátta hjá KF.
Þjálfari KF gerði skiptingu á 60. mínútu þegar Thomas Lamaille fór útaf fyrir Bjarma Eiríksson.
Bæði lið áttu ágætis sóknir en leikurinn hélst áfram jafn í seinni hálfleik og mikil barátta um hvern bolta.
Á 83. mínútu gerði KF tvöfalda skiptingu og komu tveir síðustu varamenn liðsins inná, en það voru Agnar Óli Grétarsson og Hafþór Máni Baldursson. KF hafði aðeins 4 varamenn á bekknum í þessum leik.
Í uppbótar tíma fékk Jakob Auðun Sindrason tvo gul spjöld og þar með rautt og var KF manni færri í nokkrar mínútur sem eftir lifðu.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann KF góðan útisigur og var baráttan góð allan leikinn. Lokatölur 0-1 fyrir KF.
Dómari leiksins Tómas Wolfgang Meyer hafði einnig góð tök á leiknum en hann gengur undir nafninu “Borgarstjórinn” – Meyerinn.








