Knattspyrnufélag Fjallabyggðar heimsótti Knattspyrnufélag Kópavogs á Íslandsmótinu í 3. deild karla.  Leikurinn fór fram í Fagralundi í Kópavogi, gervigrasi KFK.  KF hafði unnið fyrri leik liðanna í 1. umferðinni í vor með nokkrum yfirburðum. KFK hafði aðeins unnið þrjá leiki á Íslandsmótinu fyrir þennan leik eins og KF en aðeins munaði tveimur stigum á liðunum í deildinni og var KFK rétt fyrir ofan botninn.

KF hefur gengið illa að skora mörk í deildinni en hafði aðeins fengið á sig 15 mörk 12 leikjum.

Í lið KF vantaði meðal annars Marinó Snæ Birgisson sem meiddist í síðasta leik, Jordan Damachoua var ekki á leikskýrslu og ekki heldur Þorsteinn Már Þorvaldsson. Þá var nýr leikmaður Alexander Már Þorláksson ekki með í þessum leik.

Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokk KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.

Umfjöllun:

Heimamenn byrjuðu betur og skoruðu strax í upphafi leiks, markið skráð á 4. mínútu. KFK skoraði annað mark á 39. mínútu og komust í 2-0.  Í uppbótartíma skoraði KFK aftur og voru komnir í 3-0 og þannig var staðan í hálfleik. Virkilega erfiður hálfleikur fyrir KF.

Þjálfari KF gerði eina skiptingu í hálfleik og kom Þorgeir Örn Tryggvason inná fyrir Ragnar Eiríksson. Á 58. mínútu kom Jóhannes Helgi Alfreðsson inná fyrir Heimi Grétarsson.

KF hélt áfram að berjast í síðari hálfleik. Eftir góða skyndisókn upp hægri kantinn þá kom fyrirgjöf og komst Agnar Óli í boltann og skoraði gott mark. Staðan orðin 3-1 á 65. mínútu.

Hafþór Baldursson  kom inná fyrir Alex Óskarsson á 82. mínútu og var settur meiri þungi í sóknina.

Í uppbótartíma skoraði Agnar Óli Grétarsson sitt annað mark fyrir KF, markið skráð á 93. mínútu. Því miður gafst ekki tími fyrir jöfnunarmark og vann KFK 3-2 sigur og lyftu sér af hættusvæðinu í bili.

KF hefur nú tapað tveimur leikjum í röð og er í 9. sæti deildarinnar af 12 liðum. Mjög þéttur pakki er frá miðri deild og niður í fallsæti og getur einn sigur fær liðið í miðja deild.