KF/Dalvík í 3. flokki karla hóf daginn á leik gegn Leikni í 3. flokki karla á Reycup í Laugardalnum. Mjög fínt veður var á meðan leiknum stóð og góð mæting í stúkuna á aðalvelli Þróttar í Reykjavík. KF/Dalvík lék í gulum vestum í fyrri hálfleik en Leiknir lék í vestunum í síðari hálfleik.

Bæði lið voru með 3 stig fyrir leikinn en Leiknir hafði leikið tvo leiki og KF/Dalvík einn leik í riðlinum. Það var því mikið undir fyrir bæði lið að ná sigri í þessum leik.

KF/Dalvík braut ísinn í fyrri hálfleik og skoruðu fyrsta mark leiksins, en Leiknir svaraði fljótt og var staðan 1-1 um miðjan fyrri hálfleik. Leiknir náði snöggri sókn undir lok fyrri hálfleiks og skoraði gott mark þegar sóknarmaður þeirra var einn á móti markmanni. Staðan því 2-1 í hálfleik fyrir Leikni. KF/Dalvík náði oft að skapa hættu úr föstum leikatriðum eins og löngum innköstum og hornspyrnum. Markmaður KF/Dalvíkur lét vel í sér heyra og stýrði sínum mönnum í vörninni.

Hart var barist um hvern bolta í þessum leik og nokkuð um pústra sem góðir dómarar leiksins þurftu að taka á. Nokkur gul spjöld sáust því í leiknum.

Leiknir fékk drauma byrjun í síðari hálfleik og skoruðu gott mark eftir aðra hraða sókn, brotið var á leikmanni Leiknis innan vítateigs og dæmd vítaspyrna.  KF/Dalvík strákarnir ekki sáttir með dóminn en sóknarmaður Leiknis skoraði örugglega upp í þaknetið og óverjandi fyrir markmann KF/Dalvíkur.  Staðan því orðin 3-1 og töluverður pirringur kominn í annað liðið og hróp og köll úr stúkunni Leiknismegin ekki að hjálpa til.

Eftir miðjan síðari hálfleik náði Leiknir annari hraðri sókn og komust þeir inn í teig hjá KF/Dalvík og settu boltann snyrtilega í netið, staðan 4-1 og skammt var eftir.

KF/Dalvík átti góða sókn rétt undir lok leiksins og áttu skot í slána eftir góða tilraun í hjólhestaspyrnu. Óheppnir að minnka ekki muninn þarna, en leiktíminn rann út og dómarinn flautaði leikinn af.

4-1 sigur Leiknis, en KF/Dalvík eiga eftir leik gegn Val í dag, en þeir eru efstir með 6 stig eins og Leiknir og hafa ekki fengið á sig mark, en skoraði 5. Það má því búast við erfiðum leik þar.


Seinni hálfleikur