Árlega Siglómótinu í blaki lauk í gær en það er Blakfélag Fjallabyggðar sem heldur mótið. Keppt var í tveimur karladeildum og 7 kvennadeildum. Til leiks mættu 52 lið, 12 karlalið og 40 kvennalið. Alls voru spilaðir 125 leikir á mótinu í ár.
Í 1. deild karla vann Breiðablak og Rimar voru í 2. sæti. Í 2. deild karla vann Fylkir V en BF Segull var í 2 .sæti.
Í 1. deild kvenna vann Ýmir og Fylkir B vann 2. deild kvenna. Lið BF-1 hafnaði í 4. sæti í 2. deildinni. Liðið Strumpablak vann 3. deild kvenna, Fylkir Prosecco vann 4. deildina, Krákurnar C unnu 5. deildina, KA Kötlur unnu 6. deildina og Blakfélag Hafnarfjarðar E unnu 7. deildina.
Lokahóf var svo haldið um kvöldið á Bátahúsinu en þar fór fram verðlaunaafhending. Borðhald og ball var svo á Rauðku þar sem Landabandið hélt uppi stuðinu.
