Blaktímabilið fer af stað í dag þegar bæði karla- og kvennalið KA leika um titilinn Meistari Meistaranna og fara báðir leikir fram í KA-Heimilinu. Það má búast við hörkuleikjum enda fyrstu titlar vetrarins í húfi og leikmenn spenntir að hefja tímabilið.
Konurnar í KA leika við Aftureldingu klukkan 15:00 en liðin börðust hart um titlana á síðustu leiktíð þar sem KA hampaði Íslands-, Bikar- og Deildarmeistaratitlinum.
Karlarnir byrja leik klukkan 19:30 en þá mætir KA liði Hamars en Hvergerðingar hömpuðu öllum titlunum á síðustu leiktíð.
KA-TV verður með breyttu sniði í vetur en leikirnir í dag verða sýndir beint gegn gjaldi en aðeins kostar 800 krónur að horfa á hvorn leik. Sent verður í gegnum vVenue.