Kennarar Menntaskólans á Tröllaskaga nýttu síðustu daga kennsluársins í endurmenntun og heimsóttu Framhaldsskólann á Húsavík og Framhaldsskólann á Laugum. Fengu kennarar MTR þar góðar móttökur og kynningu á skipulagi náms, húsakynni og aðstöðu skoðuð, einnig rætt í minni hópum um stakar kennslugreinar, tækifæri og áskoranir.

Kennarar MTR gistu á Narfastöðum í Reykjadal og eins gafst starfsmannahópnum tími til að skoða sig aðeins um á Húsavík.

Myndir með fréttinni koma frá mtr.is og Þórarni Hannessyni kennara.