DV.is greinir fá því að hamborgarahryggurinn frá KEA hafi verið valinn sá besti í árlegri smökkun DV en hann fékk 7,6 í einkunn. Þetta er annað árið í röð sem KEA hreppir þennan titil. Hryggurinn frá Ali varð í öðru sæti og Kjarnafæðishryggurinn í því þriðja. Ellefu hamborgarhryggir voru smakkaðir í ár en DV fékk valinkunna matreiðslumenn til að dæma þá. Eigandi Hafnarinnar, Brynjar Eymundsson matreiðslumeistari, veitti góðfúslegt leyfi til að smökkunin færi fram á veitingastaðnum auk þess sem hann eldaði kjötið og sá um allan undirbúning.

Hamborgarhryggurinn er einn vinsælasti hátíðarmatur Íslendinga og fenginn var góður hópur af matreiðslumönnum til að smakka hann í ár. Í dómnefndinni sátu Björgvin Mýrdal, yfirmatreiðslumaður á Hótel Búðum, Eiríkur Ingi Friðgeirsson, Gallery Restaurant, Hótel Holti, Gissur Guðmundsson, forseti Heimssamtaka matreiðslumanna, Jakob H. Magnússon, matreiðslumeistari á veitingahúsinu Horninu, Hrefna Rósa Sætran, matreiðslumaður og veitingahúseigandi, og Þráinn Freyr Vigfússon, yfirmatreiðslumaður á Kolabrautinni í Hörpu.