Karlakórinn í Fjallabyggð heldur söngskemmtun í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði,
föstudaginn 20. maí kl. 20.30.  Á efnisskránni eru fjölbreytt og skemmtileg lög
úr ýmsum áttum.  Undirleik annast hljómsveit kórsins.
Aðrir sem fram koma eru bræðurnir
Björn Þór og Stefán Ólafssynir og Söngsystur. Stjórnandi er Elías Þorvaldsson.

Kaffi Klara sér um kaffi og vínveitingar.

Tjarnarborg