Karlakór Dalvíkur og Karlakór Akureyrar – Geysir. efna til tónleika í Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. maí næstkomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 16:30 og er von á fjölbreyttri dagskrá þar sem kórarnir syngja í sitthvoru lagi og saman.
Kórarnir tveir hafa um árabil verið áberandi í tónlistarlífi Norðurlands og koma hér saman til að bjóða upp á sameiginlega tónleikaupplifun.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur og verður miðasala við innganginn. Posi á staðnum.