Kaffi Klara í Ólafsfirði lokar í næstu viku vegna breytinga. Dagana 13.-17. nóvember verður lokað meðan iðnaðarmenn gera breytingar. Til stendur að yfirfara veitingasalinn og fríska uppá hlutina þar, samkvæmt samtali við nýja eigendur staðarins.

Þá virðist heimasíðan vera í einhverri uppfærslu en engar upplýsingar er að finna þar núna.

Hedinsfjordur.is fjallar nánar um málið þegar breytingum er lokið.