Tónleikar verða haldnir í tanki Síldarminjasafnsins á Siglufirði í kvöld, 23. júní kl. 20:00. Tankurinn er nýjasti safngripur safnsins. Tvísöngvar, rímnakveðskapur, langspilsleikur, gömul og “frumsamin” þjóðlög og raddspuni mun hljóma í gömlum olíutanki sem nú öðlast nýtt hlutverk í samvinnu við Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Flytjendur eru:
Eyjólfur Eyjólfsson
Gústaf Daníelsson
Hrafnhildur Árnadóttir
Örlygur Kristfinnsson
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.