Í síðustu viku hélt 3. bekkur í Grunnskóla Fjallabyggðar Krakkakosningar. Krakkakosningar eru samstarfsverkefni umboðsmanns barna og KrakkaRÚV. Krakkakosningar fara fram í tengslum við forsetakosningar sem fara fram þann 1. júní næstkomandi.
3. bekkur Grunnskólans bauð nemendum 1. – 7. bekk að koma og taka þátt í Krakkakosningum með sér. Alls tóku 135 nemendur þátt í Grunnskóla Fjallabyggðar og greiddu atkvæði í kosningunum. Nemendur í 3. bekk útbjuggu kjörkassa og kjörklefa ásamt því að standa vörð á kjörstað með því að taka niður nöfn þeirra sem kusu og afhenda kjörseðla.
Þátttaka í árgöngunum var um 89% og vann Jón Gnarr kosningarnar með 40 atkvæðum. Katrín var í öðru sæti og þá Halla Hrund.
