Jón Frímann Kjartansson hefur samið aftur við KF eftir stutt stopp hjá Þrótti Vogum. Hann hefur verið lánaður til liðsins út leiktíðina en töluverð meiðsli hafa verið í sumar hjá KF.

Jón Frímann lék þrjú tímabil með KF frá 2022-2024. Hann lék 5 leiki fyrir Þrótt Vogum eftir skiptin, í Lengjubikar og Fótabolta-net bikar, en ekki í deildinni. Það er því kærkomið fyrir leikmanninn og KF að fá hann til baka.

Hann er fæddur árið 2005 og á 65 KSÍ leiki í meistaraflokki. Jón Frímann er kominn með leikheimild og ætti að vera klár í næsta leik.