Brynhildur Reykjalín Vilhjálmsdóttir var í jólaviðtali í desember. Hún uppalin í Ólafsfirði, er þriggja barna móðir og er gift Þresti Björnssyni, fyrrverandi sjómanni. Börn þeirra eru Vilhjálmur, fæddur 1997, Valur, fæddur 1999 og Margrét fædd 2001. Drengirnir eru búsettir í Reykjavík og stelpan á Akureyri og eru þau öll uppkomin.
Brynhildur hefur starfað sem kennari í 15 ár, meðal annars kennt handavinnu og ensku í Grunnskóla Fjallabyggðar. Í frítíma rekur hún eigið fyrirtækið sem heitir Dúkkulísan ehf. en er rekið undir nafninu BrynDesign.

Fyrirtækið er aðallega netverslun en hún saumar og hannar föt á kvöldin og um helgar. Hún fullhannar flíkur frá hugmynd að fullgerðri flík frá heimaskrifstofunni.

Brynhildur var í Grunnskóla Ólafsfjarðar og sótti menntun í VMA á framhaldsskólaárunum og síðar í Háskóla Íslands.

Brynhildur fer yfir sínar jólahefðir hér í viðtalinu. Fleiri jólaviðtöl má lesa hér.

Jólaviðtalið – Brynhildur Reykjalín Vilhjálmsdóttir

 

Ertu mikið Jólabarn ?

Mér hlakkar alltaf til jólanna, sérstaklega þegar allt er klárt, pakkar sendir, maturinn í ísskápum og svo framvegis.

Hver er uppáhalds jólaminningin þín ?

Það var mikið lesið heima og allir fengu bækur í jólagjöf. Uppáhalds minningarnar mínar voru að fá ný rúmföt í jólapakkanum (sem mamma þvoði og straujaði og pakkaði svo inn aftur), þau voru sett á rúmið strax um kvöldið og svo fóru allir í sín herbergi að lesa. Um þrjú um nóttina heyrðum við systkinin að pabbi var kominn í eldhúsið að borða afganga af steikinni og förum við þá fram líka. Allir sátu við eldhúsborðið að japla á köldu kjöti með nefið ofan í bók og einu ljósin sem voru kveikt voru seríunni í glugganum og á jólatrénu.

Hvað er ómissandi á jólunum ?

Síðustu árin hefur það verið að krakkarnir komi heim yfir jólin.

Hvað kemur þér í jólaskap ?

Það er misjafnt, stundum er það stemmingin upp í skóla, jólalög, ljósin eða eitthvað þvílíkt.

Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá þér ?

Coca-Cola jólalag sem var auglýsing í sjónvarpinu.

Hvernær fer jólatréið upp á þínu heimili ?

Jólatréð fer aldrei upp fyrr en 23. des. Þegar ég var krakki kom pabbi ekki heim af sjó fyrr en þá og við bíðum alltaf með að setja upp tréið svo að hann væri með í að setja það upp. Maðurinn minn er líka sjómaður og hefur þessi hefð haldist þ.e. að tréið fer ekki upp fyrr en hann er pottþétt í landi. Nú er þetta aðeins búið að breytast og við bíðum eftir að börnin okkar komi heim og þau setja upp og skreyta tréið 23. desember.

Ferðu í kirkju um jólin eða heimsækir kirkjugarðinn ?

Ég fer aldrei í kirkju um jólin né út í garð. En maðurinn minn fer með krökkunum í kirkju á aðfangadag og ég nota þá tímann fyrir mig á meðan.

Hvaða jólahefð má aldrei rjúfa ?

Engin held ég, það má alltaf skapa nýjar.

Verslar þú jólagjafir í heimabyggð, Akureyri, Reykjavík eða á netinu ?

Á öllum þessu stöðum held ég.

Horfir þú á einhverja sérstaka jólamynd til að komast í jólaskap ?

Nei, ég horfi eiginlega aldrei á sjónvarpið.

Hvað borðar þú á jólunum ?

Hamborgarahrygg og meðlæti.