Jóhann K. Jóhannsson skipar 1. sæti á lista Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra. 

Jói fór í framboð vegna þess að hann brennur fyrir að gera gagn. Hann vill taka þátt í mótun samfélagins. Við þekkjum öll Jóa, hann er alltaf tilbúinn að leggja sitt af mörkum og gildir þá einu hvort um er að ræða vinnuna eða félagslíf.

Jói er 47 ára og býr á Siglufirði, giftur Arnhildi Evu Steinþórsdóttir og eiga þau fjögur börn þar af eitt saman. Börnin eru á aldrinum 7 til 25 ára. Hann hefur starfað innan stjórnsýslu Fjallabyggðar í rúmlega fimm ár.

Jói er að ljúka BA námi á Félagsvísindabraut Háskólans á Bifröst í öryggisfræðum og almannaavörnum þar sem meðal annars opinber stjónsýsla og stjórnmál eru fyrirferðamikil. Jói er með löggildingu sem slökkvilðis- og sjúkraflutningamaður og með framhaldsmenntun í sjúkraflutninganáminu. Hann er með réttindi til þjálfunarstjórnar í slökkviliðsfaginu og lokið öllum menntunarstigum sem tengjast eldvarnareftirliti.

Hann starfaði um árabil í fjölmiðlum, fyrst sem kynningarstjóri hjá 365 miðlum (Bylgjan, FM957 og X977) í upplýsingamiðlun útvarpsstöðvana og sem dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni og undirstöðvum hennar (Létt Bylgjan og Jólastöðin). Þá var hann fréttamaður og vakstjóri á Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, sem og í ritstjórn fréttaskýringaþáttarins Kompás þar sem hann hlaut ásamt öðrum Blaðamannaverðlaun Íslands fyrir viðtal ársins. Einnig tók hann að sér verkefni fyrir hönd Ríkislögreglustjóra að móta stöðu samskiptastjóra embættisins og hefur sú staða mótast áfram í framhaldi, annars vegar innan almannavarnadeildarinnar og innan embættisins sjálfs, síðan þá.

Jói á tvo uppáhaldsstaði í Fjallabyggð. Annars vegar á svölunum heima hjá sér þar sem hann horfir yfir Hólshyrnuna. Hinn staðurinn er Skeggjabrekkudalur sem hann telur einn fallegasta dal landsins.

 

Texti: Aðsend grein.