Jassklúbbur Ólafsfjarðar tók að sér nýtt og skemmtilegt verkefni þann 17. júní, en klúbburinn sá um þjóðhátíðarhöldin í Ólafsfirði. Þar var boðið upp á ferð með slökkvibíl, hoppukastala og grillað grimmt ofan í mannskapinn.
Að hefðbundnum dagskráliðum eins og ræðu og flutning Fjallakonu á ljóði eftir Sigurstein Magnússon, tók Tröllaskagahraðlestin við og spilaði íslenska tóna fyrir gesti vel á annan tíma í frábæru veðri.