Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2011 er Sigurður Ingvi Rögnvaldsson en hann er jafnframt golfmaður Hamars 2011. Sigurður Ingvi varð á þessu ári fyrsti landsliðsmaður Golfklúbbsins Hamars. Hann tryggði sér sæti í unglingalandsliðinu og keppti fyrir hönd Íslands á Evrópumóti unglingalandsliða. Þá varð hann í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik, unglinga 17-18 ára. Einnig varð hann Norðurlandsmeistari í 17–18 ári flokki unglinga. Sigurður Ingvi hefur verið fremstur í sínum aldursflokki um árabil og hefur stundað æfingar og keppni af miklu kappi.