Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn næstkomandi og taka söfn um allt land þátt með einum eða öðrum hætti. Þessi skemmtilegi dagur var fyrst haldinn árið 1997. Markmiðið er að benda á mikilvægi faglegrar varðveislu og á þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og skemmtunar sem finna má á söfnum.
Í tilefni dagsins býður Minjasafnið á Akureyri upp á leiðsögn kl. 14 og 15 um sumarsýningu safnsins, Norðurljós – næturbirta norðursins. Sýningin samanstendur af málverkum og ljósmyndum. Málverkin eru eftir danska málarann Harald Moltke. Hann var í hópi vísindamanna frá dönsku veðurstofunni sem kom gagngert til Akureyrar árið 1899 til að rannsaka norðurljósin. Ljósmyndirnar tók áhugaljósmyndarinn Gísli Kristinsson frá Ólafsfirði.
Í Gamla bænum Laufási verður boðið upp á leiðsögn um bæinn kl 14. Áhugasamir gestir geta smakkað grasate og starfsfólk Pólarhesta munu teyma undir yngstu gestunum milli kl. 14 og 16. Skáldahúsin þrjú á Akureyri Nonnahús, sem tileinkað er barnabókahöfundinum Jóni Sveinssyni, Nonna, Sigurhæðir, hús þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar, og Davíðshús, hús hins ástsæla skálds og rithöfundar Davíðs Stefánssonar, verða öll opin. Opnunartími í Davíðshúsi og Sigurhæðum er frá kl 13-17, í Laufási 9-17 og í Minjasafninu og Nonnahúsi kl. 10-17. Frítt er á þessi söfn í tilefni dagsins.
Texti: www.akureyri.is – Hlynur Þormóðsson.