Fjögur mót af vikulegu Ísfélagsmótaröðinni í golfi er lokið hjá Golfklúbbi Siglufjarðar. Fyrsta mótið var haldið 17. júní en í sumar er keppt í þremur flokkum, höggleik án forgjafar og í punktakeppni í A og B flokki. Mótin verða alls 12 og lýkur mótaröðinni í september.

Í fyrsta mótinu var Sigurgeir Ólafsson með  17 punkta í A flokki og Ásgeir Sölvason með 20 punkta í B flokki. Þá var Jóhann Már Sigurbjörnsson á 38 höggum.

Í 2. mótinu var Kári Hreinsson með 19 punkta í A flokki og Ásgeir Sölvason með 22 punkta í B flokki.  Jóhann Már var með 35 högg.

Þriðja mótið var haldið 1. júlí og voru 23 keppendur. Guðjón M. Ólafsson var í 1. sæti í A flokki með 20 punkta. Erla Gunnlaugsdóttir var í 1. sæti í B flokki með 15 punkta. Jóhann Már var 34 höggum í höggleik.

Fjórða mótaröðin var haldin 8. júlí síðastliðinn og voru 21 keppendur á mótinu. Ása Guðrún Sverrisdóttir sigraði í A flokki með 19 punkta. Ásgeir Sölvason sigraði í B flokki með 21 punkt. Jóhann Már Sigurbjörnsson var á 36 höggum.

Næsta mót á Siglufirði er Meistaramót GKS sem hefst 16. júlí.  20 eru núna skráðir í meistaramótið.

Þá er skráning hafin á Segul 67 Open – Texas scrable mótið sem er haldið 25. júlí.