Íbúar við Þormóðsgötu og Hvanneyrarbraut á Siglufirði hafa sent erindi til Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar er varðar áhyggjur þeirra af hraðakstri sem á sér stað á Þormóðsgötu. Segja þeir að ekki sé einungis um hefðbundna umferð íbúa að ræða, heldur einnig umferð stærri og þyngri ökutækja sem aki þá oft hraðar en eðlilegt getur talist. Þá sé gatan vinsæl hjá ökumönnum mótorhjóla og ungum ökumönnum sem gaman hafa af hraðakstri.

Vegna þess að mikið er um börn að leik og fótgangandi umferð á sumrin sé eðlilegt að gerðar verði ráðstafanir áður en slys eiga sér stað. Vilja þau þess vegna að gripið verði til aðgerða til þess að draga úr slysahættu og umferðarhraða, meðal annars með uppsetningu hraðahindrana.

Samkvæmt   Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar er bent á að málið verði skoðað í vinnslu umferðaröryggisáætlunar Fjallabyggðar.

Þormóðsgata liggur í grennd við Leikskóla og Grunnskóla á Siglufirði og er all brött efst við Hlíðarveginn.