Fjallabyggð heldur íbúafund vegna fjárhagsáætlunar 2026 í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði, þriðjudaginn 9. desember kl. 17:00.
Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að Þórir Hákonarson bæjarstjóri Fjallabyggðar kynnir helstu atriði fjárhagsáætlunar 2026 og fyrirhugaðar framkvæmdir í sveitarfélaginu og í kjölfarið gefst fundargestum kostur á að taka þátt í umræðum og leggja fram fyrirspurnir.