Gunnsteinn Ólafsson birti á samfélagsmiðlum í gær myndir af  hvalreka í botni Héðinsfjarðar. Tvö smáhveli lágu þar í fjörunni, sennilega grindhvalir. Með í för var Örlygur Kristfinnsson, Már Örlygsson og Susann Rittermann, þýsk myndlistarkona.  Hópurinn var í firðinum til að uppræta lúpínu.

Feðgarnir fara jafnan nokkrar ferðir á hverju sumri til þess að safna lúpínufræum eða slá lúpínubreiður og var það meðal annars tilgangur þessarar gönguferðar. Myndlistarkonan synti síðan hátt í þrjá kílómetra eftir endilöngu Héðinsfjarðarvatni í blautbúningi og með viðeigandi búnað.

Hvalirnir hafa líklega legið þarna í einhvern tíma.

Myndirnar eru birtar með góðfúsu leyfi Gunnsteins.