Fimmtudaginn 23. janúar síðastliðinn barst Lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að hundur hafi ráðist á konu sem var á gangi eftir Wilhelmínugötu til móts við Jóninnuhaga á Akureyri.
Eftir árásina var konan flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en hún var slösuð eftir árásina.
Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
MAST og Akureyrarbæ hefur verið tilkynnt um málið en þær stofnanir fara með málefni hundsins.
Upplýsingar eru um að mögulega hafi vitni verið að árásinni. Viðkomandi eru beðin um að gefa sig fram við lögreglu eða hafa samband í síma 444-2800 á opnunartíma.