Þórir Hákonarson bæjarstjóri Fjallabyggðar hefur farið fyrir yfir hugmyndir um byggingu knatthúss í Fjallabyggð með bæjarráði Fjallabyggðar. Húsið yrði 50 sinnum 70 metrar að stærð og myndi stórauka nýtingu á æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnu í Fjallabyggð jafnframt því sem húsið gæti nýst fyrir ýmsa aðra starfsemi. Ekki kemur fram í fundargerð ráðsins hvaða staðsetningar kæmu til greina fyrir þetta knatthús.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur kallað fulltrúa frá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar á næsta fund til fara yfir hugmyndir um knatthús.
Æfingaraðstaða KF og grasvöllurinn í Ólafsfirði hefur verið afar slæm í mörg ár, og engin aðstaða yfir veturinn. Liðið hefur þurft að leigja tíma á Dalvíkurvelli og inn á Akureyri með tilheyrandi kostnaði og tíma.
Þetta eru stórfréttir ef þetta mál verður samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar.