Fjallabyggð óskar er eftir tillögum að nafni á nýja íbúðargötu á gamla malarvellinum á Siglufirði. Skipulags- og umhverfisnefnd  Fjallabyggðar mun fjalla um tillögurnar í byrjun janúar. Skipulags- og umhverfisnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum.

Hugmyndasöfnunin er rafræn á samrásvef Fjallabyggðar undir Betra Ísland á eftirfarandi slóð: https://www.betraisland.is/group/27257

Öllum er frjálst að senda inn tillögur.