Uppi er hugmynd um að skoða möguleika á uppsetningu á salernishúsi í Skarðsdalsskógi á Siglufirði sem nýta mætti fyrir útivistarfólk og gesti á svæðinu. Skógræktarfélag Siglufjarðar telur mikla þörf fyrir slíka aðstöðu á þessu frábæra útivistarsvæði, en þar er aðstaða til að grilla og fjölbreyttar gönguleiðir.
