Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Orkustofnun og Rafbílastöðin hafa síðastliðið ár unnið að greiningarvinnu á bifreiðaflota stofnunarinnar fyrir orkuskipti og uppbyggingu hleðsluinnviða. Bifreiðafloti Heilbrigðisstofnunar Norðurlands telur ríflega 40 bifreiðar og þjónustar Norðurlandið, allt frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar á Langanesi í austri.
Ökuriti í allar bifreiðar HSN
Árið 2023 hófst verkefnið með innleiðingu á greiningarbúnaði í allar bifreiðar stofnunarinnar til gagnasöfnunar, en það er eitt af fyrstu skrefum til að ná yfirsýn og geta unnið markvisst að sjálfbærni í notkun flotans. Yfir eitt ár söfnuðu bílarnir raungögnum með Geotab flotastjórnunarkerfinu sem er ökuriti sem mælir akstur bílanna og hvar þeir dvelja mest. Þetta gaf nákvæma og góða yfirsýn yfir notkunarmynstur bílaflotans og niðurstöður um hvar ætti að byggja upp hleðsluinnviði út frá raunhleðsluþörf.

Samningur um Flotastjórnun til framtíðar
Rafbílastöðin og HSN hafa nú í kjölfar af þessum niðurstöðum undirritað samkomulag með Rafbílastöðinni undir yfirheitinu Flotastjórnun til framtíðar sem felur í sér vinnu við orkuskipti, innviðauppbyggingu og markvissar aðgerðir til að stuðla að vistvænum akstri. Stofnunin hefur nú fullkomna yfirsýn yfir bifreiðaflota fyrirtækisins og raungagnasöfnun úr Geotab, ásamt reynslu mun tryggja bestu ákvörðunartöku hverju sinni fyrir árangursrík orkuskipti. Lögð verður áhersla á að hafa jákvæð áhrif á akstursþætti sem geta minnkað kostnað, m.a. lækkað útblástur og aukið öryggi í umferð, en því fylgir t.d mikill kostnaðar- og umhverfisávinningur bara að minnka lausagang bifreiða innan flotans. Samhliða verkefninu hefur HSN skipt átta bifreiðum út fyrir rafmagnsbíla með góðum árangri.