Hrund Pétursdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar. Hún var valin úr hópi margra hæfra umsækjanda, en alls sóttu 18 aðilar um stöðuna.
Hrund lauk B.Sc. prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Hrund starfaði við lánveitingar til fyrirtækja hjá Arion banka árin 2010-2015 og hefur frá þeim tíma starfað sem sérfræðingur á rekstrarsviði og umsjónarmaður áhættustýringar Byggðastofnunar sem meðal annars felur í sér reglubundin skýrsluskil til stjórnar stofnunarinnar og eftirlitsaðila ásamt eftirliti með lánasafninu.
Hrund hefur brennandi áhuga á byggðamálum og metnað til þess að jafna tækifæri landsmanna allra til atvinnu og búsetu. Hún hefur störf mánudaginn 14. nóvember.
Heimild: Byggðastofnun.