Hraðamyndavélar verða teknar í notkun í Héðinsfjarðargöngum á morgun. Hámarkshraði í göngunum er 70 km á klukkustund.
Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Vegagerðin, innanríkisráðuneytið, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna.
Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.
MBL.is greinir frá.