Hótel Siglunes á Siglufirði hefur verið auglýst til sölu, bæði rekstur og húsnæði. Hótel Siglunes stendur við Lækjargötu 10 en einnig eru til sölu tengdar eignir og lóðir. Það er Gimli fasteignasala sem sér um sýnir húsið. Ásett verð er 490 milljónir króna.
Í hótelinu eru 17 herbergi, fyrir samtals 38 manns. Einnig eru 2 starfsmannaíbúðir fyrir alls 5 starfsmenn og 70 fm rými sem hægt er að nýta sem skrifstofu. Einstök lúxusíbúð hefur verið innréttuð í hluta hótelhúsnæðisins, stórt alrými með eldhúsi, setu- og borðstofu. Tvö svefnherbergi, bæði með baðherbergi.
Sundurliðun á hótelherbergjum:
2 double deluxe, 1 triple deluxe, 1 family deluxe, 5 standard double, 3 standard twin, 1 standard triple, 1 standard family, 2 single með sameiginlegu baði, 1 double með sameiginlegu baði
Auk þess: Starfsmannaíbúð (fyrir allt að 3), Starfsmannahús (fyrir allt að 2), 70 m2 ónotað rými (geymsla/skrifstofa), þvottahús og geymsla, heitur pottur, útisturta og reiðhjól.
Nánari upplýsingar eru á fasteignavef mbl.is.