Fjallabyggð er með í vinnslu lagfæra tjaldsvæðið í Ólafsfirði, en það drenar illa á rigningardögum og verður ónothæft þegar mikið rignir. Svæðið er núna í hönnunarferli fyrir framkvæmdir og lagfæringar.
Reksturinn á tjaldsvæðum Fjallabyggðar gekk almennt vel í sumar og var góð nýting á tjaldsvæðum í júlí og ágúst.
Nokkur mál komu þó sem snéru að slæmri umgengni, ónæði frá unglingum sem ekki voru gestir á svæðinu, en rekstraraðilar tjaldsvæðisins tóku á þeim málum í sumar.