Hólahátíðin hefst föstudaginn 14. ágúst og lýkur á sunnudeginum þann 16. ágúst. Aðalræðumaður Hólahátíðar árið 2015 verður Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Sr. Sigurður Ægisson flytur erindi í Auðunarstofu á föstudag. Á laugardag er pílagrímsganga frá Gröf heim að Hólum með biblíulestrum. Gengið verður yfir Hrísháls þar sem óvænt fyrirbæri og ævintýraverur sjást. Þá verður sundlaugin á Hólum opin. Dagskrá verður fyrir börn á öllum aldri í Hóladómkirkju. Á sunnudag verður hátíðarmessa og prestavígsla. Nánari tímasetningar má sjá í meðfylgjandi dagskrá.
Dagskrá Hólahátíðar 2015:
Föstudagur 14. ágúst
Kl. 10:00-18:00 Biblíusýning opin í Auðunarstofu.
Kl. 20:00 Hólabiblíur – um þrjár fyrstu biblíuútgáfur Íslendinga.
Sr. Sigurður Ægisson flytur erindi í Auðunarstofu.
Sr. Sigurður Ægisson flytur erindi í Auðunarstofu.
Laugardagur 15. ágúst
- Kl. 10:00 Pílagrímaganga frá Gröf heim að Hólum með biblíulestrum. Lagt af stað frá Grafarkirkju kl. 10:00 og tekur gangan um sex tíma. Helgistund við heimkomu í Hóladómkirkju.
- Kl 13.00 Ganga yfir Hrísháls í fylgd Önnu Þóru Jónsdóttur frá Vatnsleysu. Gengið inn í söguna. Lagt af stað frá Enni kl. 13:00 og tekur gangan 3-4 tíma heim að Hólum. Á veginum verða hin ýmsu óvæntu fyrirbæri og ævintýraverur úr raunveruleika fyrri tima.
- Sundlaugin á Hólum opin kl. 14:00-18:00
- Kl. 17:00 Dagskrá fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra í Hóladómkirkju í umsjá Helga Zimsen og Rósu Jóhannesdóttur.
- Kl. 18:00 Kvöldverður. Hlaðborð með gómsætum Biblíumat Undir Byrðunni. Uppskriftirnar eru úr bók sr. Svavars Jónssonar.
Sunnudagur 16. ágúst
- Kl. 11:00 Dr. Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindið: Áhrifasaga Saltarans. Um áhrif Davíðssálma í sögu og samtíð á bókmentir, listir og kvikmyndir.
- Kl. 14:00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Prestsvígsla. Mag. theol Halla Rut Stefánsdóttir verður vígð til að gegna sóknarprestsembætti í Hofsós- og Hólaprestakalli.
- Veislukaffi í Hólaskóla.
- Kl. 16:30 Hátíðarsamkoma í Hóladómkirkju. Ólöf Nordal innanríkisráðherra flytur hátíðaræðu. Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags flytur ávarp. Kirkjukór Hóladómkirkju flytur biblíuljóð.
